Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9020
Meginspurningin í þessari grein er í sjálfu sér einföld: Hafa íslensk stjórnvöld haft áhrif á alþjóðavettvangi? Út frá henni má svo spyrja fleiri spurninga: Ef sú var raunin, hvernig höfðu þau þá áhrif og hvers vegna? Og væri hægt að nota söguna, reynsluna frá liðinni tíð, til að styrkja stöðu Íslands meðal annarra þjóða, til dæmis í baráttunni fyrir sæti í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna? En að lokum þarf svo líka að spyrja, ef út í það er farið: Hverjir eru það sem segja helst að íslensk stjórnvöld hafi haft áhrif til góðs á alþjóðavettvangi? Kannski aðeins þau sjálf?
Auðvitað er aðeins hægt að stikla á stóru í þessum efnum og hér verður bent á þrjá málaflokka þar sem því hefur verið haldið fram að rödd Íslands hafi hljómað svo eftir var tekið.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
b.2008.4.1.3.pdf | 136.83 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |