Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9064
Það er áhugamönnum um fornan kveðskap fagnaðarefni að nú hefur loksins komið út aðgengilegt heildarsafn ljóða Jóns biskups Arasonar. En er ástæða til þess að skrifa um slíka bók í tímarit um stjórnmál og stjórnsýslu?
Jón biskup var reyndar ekki síst stjórnmálamaður, sá fyrirferðarmesti á Íslandi á sinni tíð og mörg kvæði hans eru veraldleg og fjalla um pólitísk vígaferli. En helsta ástæða þess að þessi bók á brýnt erindi við áhugamenn um íslensk stjórnmál, þjóðfélagsgerð og þjóðfélagsþróun er ítarlegur inngangur eftir Ásgeir Jónsson hagfræðing, sem nefnist: Alþýðuskáldið Jón Arason (bls. 9-86). Inngangurinn er í raun dálítil bók um manninn Jón Arason og það samfélag sem hann lifði í. Ásgeir setur líf og baráttu Jóns í samhengi við þjóðfélagsgerð 16. aldar og greinir helstu öfl sem áttust við í því samfélagi og margslungnar rætur þeirra á sviðum efnahagsmála, stjórnmála, menningar og trúmála – innan lands og utan. Niðurstaðan er einkar áhugaverð mynd af íslensku þjóðfélagi á 15. og 16. öld – Íslandi miðaldar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
c.2006.2.2.8.pdf | 23.93 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |