is Íslenska en English

Grein

Háskóli Íslands > Rafræn tímarit > Stjórnmál og stjórnsýsla >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9104

Titill: 
  • Umsátrið - fall Íslands og endurreisn
Útgáfa: 
  • Desember 2009
Útdráttur: 
  • Í umsögn gagnrýnanda kemur meðal annars eftirfarandi fram: "Bókin er innlegg í umræðu um hvernig efla megi lýðræði á Íslandi og draga úr áhrifum sérhagsmuna en ekki fræðileg úttekt á orsökum hrunsins eða eftirmálum þess. Höfundurinn hefur lengi verið þátttakandi í þeirri umræðu. Einnig hafði hann sem ritstjóri Morgunblaðsins meiri völd en flestir aðrir til að móta almenningsálitið og miðla upplýsingum til almennings. Styrmir víkur sér ekki undan þeirri ábyrgð en reynir hins vegar að útskýra í bókinni hvernig málið horfði við honum og hvers vegna Morgunblaðið veigraði sér t.d. við að benda á ýmsa misbresti í íslensku fjármálalífi.... Eftir lestur bókarinnar situr (þó) eftir sú hugsun að það sé nær lagi að umsátrið hafi verið um íslenskan almenning en ekki um sjálfstæði Íslands. Almenningur hafði litla hugmynd um að hverju stefndi vegna þöggunarinnar sem Styrmir fjallar um. Innan íslenska valdakerfisins vissu ýmir í hvað stefndi en það mátti bara ekki tala um það."

Birtist í: 
  • Stjórnmál og stjórnsýsla, 5 (2) 2009
ISSN: 
  • 16706803
Athugasemdir: 
  • Bókardómur
Samþykkt: 
  • 8.6.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/9104


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
c.2009.5.2.3.pdf28.88 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna