Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9111
Eftirfarandi ritgerð er unnin með það fyrir augum að skoða menntun grunnskólakennara í eineltismálum. Framkvæmd var eigindleg rannsókn meðal 12 kennara sem allir útskrifuðust á árunum 2005-2010 frá Háskóla Íslands/Kennaraháskóla Íslands. Áhersla var lögð á hvernig kennarar skilgreina hugtakið einelti, hvernig þeir meta tíðni eineltis í íslenskum grunnskólum, hvort þeir séu í stakk búnir til að koma auga á einelti, hver viðbrögð þeirra eru ef upp koma eineltismál, hver helsti ótti þeirra er þegar taka þarf á einelti, hvernig þeir meta eineltiskennsluna sem þeir fengu í námi sínu og hvaða úrbætur þeir vilja sjá í kennaranáminu um ókomna tíð.
Rannsóknarspurningar ritgerðarinnar eru eftirfarandi: Hvaða hugmyndir hafa grunnskóla- og íþróttakennarar um einelti, hvernig umfjöllun segjast grunnskóla- og íþróttakennarar hafa fengið um einelti í námi sínu og hvernig meta þeir þann undirbúning, sem þeir fengu í náminu, til að fást við einelti? Niðurstöður rannsóknar leiddu í ljós að þeim kennurum, sem tóku þátt í rannsókninni, finnst þeir ekki hafa fengið næga þjálfun og fræðslu um einelti í námi sínu. Þeir gera sér grein fyrir hvað felst í hugtakinu einelti og eru meðvitaðir um hversu alvarlegt einelti er. Þá virðast kennararnir ekki gera sér nægjanlega vel grein fyrir tíðni eineltis í grunnskólum landsins miðað við íslenskar rannsóknir í þeim efnum og eiga erfitt með að koma auga á einelti. Að lokum höfðu kennararnir sterkar skoðanir á því hvernig kennsla varðandi einelti ætti að vera í kennaranáminu.
Á heildina litið eru þessar niðurstöður taldar styrkja eldri rannsóknir sem gerðar hafa verið um menntun grunnskólakennara í eineltismálum hér á landi. Í ritgerðinni er fjallað er um gagnsemi þessara niðurstaðna en þær má meðal annars nota til að setja fram tillögur um aukna þjálfun og fræðslu í eineltismálum fyrir kennaranema, starfandi kennara og skólastjórnendur.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
MA ritgerð - lokaskil PDF __.pdf | 2.06 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |