is Íslenska en English

Grein

Háskóli Íslands > Rafræn tímarit > Stjórnmál og stjórnsýsla >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9116

Titill: 
  • Traust á sögulegum grunni. Rannsókn á fréttareglum Ríkisútvarpsins
Höfundur: 
Útgáfa: 
  • Desember 2009
Útdráttur: 
  • Ríkisútvarpið hefur starfað eftir skrifuðum fréttareglum nánast frá stofnun. Þessar reglur hafa mótað fréttaflutning stofnunarinnar og skapað RÚV ákveðna sérstöðu á íslenskum fjölmiðlamarkaði. Fimm reglur hafa verið í gildi frá 1931 og miða elstu þjrár fyrst og fremst að því að halda RÚV utan við pólitískar þrætur og illdeilur í samfélaginu, gagngert til að halda frið um stofnunina og búa til „þjóðarútvarp“. Því var lögð ofuráhersla á form og óhlutdrægni í framsetningu, en innihald og mikilvægi þá frekar látið liggja milli hluta.
    Með því að ríghalda í formreglur og óhlutdrægnisregluna gátu fréttamenn RÚV varist pólitískri ágjöf í samfélagi sem markaðist af flokksátökum. Þessi stefna kostaði þó það að mikilvægum þáttum faglegrar blaðamennsku var ýtt til hliðar, svo sem að RÚV bæri ábyrgð á fréttum sínum, fjallaði um átök, segði frá því sem mikilvægt væri og verndaði heimildarmenn sína ef svo bar undir. Í fjórðu og næstsíðustu fréttareglum RÚV, sem settar eru 1989, er bætt úr þessum ágöllum á sama tíma og ríghaldið er í óhlutdrægnisregluna. Þessi breyting var svo staðfest í núgildandi reglum sem eru frá því í maí 2008. Með þessari sögu og hefð hefur RÚV forskot á prentmiðlana á tíma markaðsfjölmiðlunar, sem m.a. skilar sér í miklu trausti á Ríkisútvarpinu.

Birtist í: 
  • Stjórnmál og stjórnsýsla, 5 (2) 2009, 295-310
ISSN: 
  • 16706803
Athugasemdir: 
  • Fræðigrein
Samþykkt: 
  • 9.6.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/9116


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
a.2009.5.2.5.pdf156.44 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna