is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Heilbrigðisvísindasvið > B.S. verkefni - Heilbrigðisvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9124

Titill: 
  • Mergæxli á Íslandi 2000 - 2009
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Inngangur: Mergæxli er illkynja, ólæknandi sjúkdómur sem stafar af fjölgun einstofna plasmafrumna í beinmerg, er 1% allra æxla á Íslandi og kemur einna helst fram í einstaklingum eldri en 65 ára. Undanfarið hafa nýjar meðferðir verið þróaðar og sjúklingar yngri en 70 ára gangast flestir undir háskammtameðferð með eigin stofnfrumuígræðslu. Tilgangur þessarar rannsóknar var að kanna lifun sjúklinga sem greindust með mergæxli á Íslandi á árunum 2000-2009 með tilliti til áhættuþátta, aldurs við greiningu og meðferðar og bera saman við fyrri rannsókn.
    Efniviður og aðferðir: Rannsóknin er afturskyggn og nær til allra sem greindust með mergæxli á árunum 2000 – 2009. Krabbameinsskrá veitti upplýsingar um nýgreind tilfelli og klínískar upplýsingar fengust úr sjúkraskrám Landspítala, Sjúkrahússins á Akureyri og Læknasetursins. Útbúinn var gagnagrunnur með fyrrnefndum upplýsingum og lifun skoðuð með tilliti til aldurs, tegundar einstofna mótefnis, ISS stigunarkerfis og meðferðar. Gerð voru Kaplan – Meier gröf til þess að kanna hvort marktækur munur væri á lifun milli hópa og lifun einstaklinga úr fyrri rannsókn borin saman við niðurstöður þessarar rannsóknar.
    Niðurstöður: Alls greindust 148 einstaklingar á tímabilinu, 76 karlmenn og 72 konur. Árlegt aldursstaðlað nýgengi á árunum 2000 – 2009 er 4,1 fyrir karla og 3,2 fyrir konur af hverjum 100.000. Meðalaldur við greiningu var 70,2 ár. Helstu einkenni við greiningu voru þreyta (58,1%), verkir í stoðkerfi (27,7%) og þyngdartap (9,5%). Alls 61 einstaklingur fékk meðferð með nýju lifi, bortezómíð (Velcade®) og var 50% lifun þeirra 74 mánuðir borið saman við 29 hjá þeim sem fengu ekki bortezómíð (p<0,001). Alls 42 fengu stofnfrumuígræðslu og er meðallifun þeirra 88,8 mánuðir borið saman við 42,8 mánuði hjá þeim sem fengu ekki slíka meðferð (p<0,001) en 50% lifun er ekki náð. Þeir sjúklingar sem fengu bortezómíð en ekki stofnfrumumeðferð, 65 ára og eldri, reyndust lifa í 50 mánuði borið saman við 33 í fyrri rannsókn (p=0,03). Ekki reyndist vera marktækur munur á lifun eftir gerð parapróteins en lífshorfur þeirra sem hafa léttkeðjusjúkdóm eru verstar. Á tímabilinu 2000 – 2009 hefur 50% lifun sjúklinga með mergæxli batnað frá því að vera 30 mánuðir á tímabilinu 1980-2000 í 47 mánuði (p=0,003).
    Ályktun: Lífslíkur sjúklinga á Íslandi með mergæxli hafa marktækt batnað síðasta áratug með nýjum lyfjum og stofnfrumuígræðslu.

Samþykkt: 
  • 9.6.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/9124


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
mergæxli á Íslandi.pdf918.02 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna