is Íslenska en English

Grein

Háskóli Íslands > Rafræn tímarit > Stjórnmál og stjórnsýsla >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9125

Titill: 
  • Áhrif feminisma á utanríkisstefnu Íslands 1999-2009
Útgáfa: 
  • Júní 2010
Útdráttur: 
  • Í greininni eru skoðuð áhrif femínisma á íslenska utanríkisstefnu 1999-2009. Kvennahreyfingar og femínísk hugmyndafræði höfðu mótandi áhrif á marga þætti íslensks samfélags á 20. öld en slík áhrif á utanríkisstefnu voru nær ósýnileg. Í lok fyrsta áratugar
    21. aldar hafði þetta breyst verulega og er hér leitað skýringa. Aðferðafræði Sabatiers um samsteypuþrýstihópa er notuð og litið til fjölgunar kvenna á þingi, í utanríkismálanefnd og í utanríkisþjónustu. Þá er þrýstingur frá frjálsum félagasamtökum og áherslur alþjóðastofnana á kynjajafnrétti og stöðu kvenna nokkur áhrifavaldur. Að lokum er beitt innihaldsgreiningu á flutningsræður utanríkisráðherra með skýrslum þeirra til Alþingis.
    Merkja má auknar áherslur á jafnréttismál og málefni kvenna í ræðunum eftir því sem líður á tímabilið. Í utanríkisstefnu sinni hefur Ísland valið að leggja áherslu á tiltekna málaflokka og hlutfallslega sterk staða kvenna í íslensku samfélagi hefur gert að verkum að þessi málaflokkur er vel til þess fallinn að skapa sérstöðu á alþjóðavettvangi. Arfleifð Kvennalistans er skýrt merkjanleg, en ýmis atriði sem Kvennalistinn setti á dagskrá í utanríkismálum eru nú orðin sýnileg í stefnunni þótt þau hafi ekki átt upp á pallborðið á sínum tíma. Niðurstöður eru því að kvennahreyfingar og femínismi hafi haft umtalsverð áhrif á utanríkisstefnu Íslands og eru þau áhrif rakin til þess að á síðustu tíu árum hafi komið saman áhrif úr ólíkum áttum innan og utan stjórnkerfisins.

Birtist í: 
  • Stjórnmál og stjórnsýsla, 6 (1) 2010, 73-94
ISSN: 
  • 16706803
Athugasemdir: 
  • Fræðigrein
Samþykkt: 
  • 9.6.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/9125


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
a.2010.6.1.4.pdf310.01 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna