Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9127
Ísland hefur þá sérstöðu meðal lýðræðisþjóða að mun hærra hlutfall kjósenda er skráð í stjórn málaflokka en þekkist annars staðar. Þetta vekur spurningar um eðli og hlutverk flokks aðildar og kallar á skýringar á sérstöðu Íslands. Auk þess hefur meðlimum stjórnmála flokkanna fjölgað hér á landi, þvert á reynsluna í öðrum löndum. Víða um heim veldur fækkun meðlima í stjórnmálaflokkunum áhyggjum, en spyrja má hvort mikill fjöldi meðlima í þeim íslensku sé heilbrigðismerki á íslenska flokkakerfinu. Í þessari grein er leitast við að kortleggja og skýra meðlimaþróun íslensku stjórnmálaflokkanna með hliðsjón af kenningum um skipulag stjórnmálaflokka. Forsenda mikils meðlimafjölda er að aðild að flokkunum er í raun frígæði á Íslandi en þróun prófkjaranna hefur átt meginþátt í því að gera þá möguleika til fjölgunar meðlima sem frígæðin skapa að veruleika.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
a.2010.6.2.1.pdf | 319.04 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |