Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9206
Framkvæma ákveðnar breytingar á hönnun stjórnnets Mílu með það að leiðarljósi að hámarka rekstraröryggi stjórnnetsins, ásamt því að útfæra hönnun netsins þannig að hún veiti nægilegan sveigjanleika til framtíðar útvíkkunar stjórnnetsins og hugsanlegra breytinga á hlutverki þess. Þessum tveim megin atriðum má ná með grundvallarbreytingu á stjórnnetinu úr lag 2 (e. Layer 2, OSI líkan verður útskýrt í kafla 2) neti í lag 3 net.
Upphafleg hönnun Stjórnnets Mílu tók mið af því að vera einungis á lagi 2 í OSI líkaninu. Byggðir voru upp hringir með sýndarstaðarnetum sem bæði aðgreindu mismunandi tækni og hringi, sýndarstaðarnetin fengu merki eftir ákveðinni reglu þar sem merkin voru tveggja stafa og fyrri tölustafurinn sagði til um tækni og seinni tölustafurinn sagði til um hring númer, sem dæmi má nefna Sýndarstaðarnets merkin 43 og 41, 4 í þessu tilfelli merkti SDH en 3 og 1 merkti hring 3 annarsvegar og hring 1 hinsvegar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
RI LOK1006 Stjórnnet Mílu Fjölnir Þorsteinsson og Elmar Torfason.pdf | 72.59 MB | Lokaður | Heildartexti |
Athugsemd: Vegna þeirra upplýsinga sem er að finna í verkefninu um aðgengi að stjórnneti Mílu þarf það að vera lokað til framtíðar.