Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9212
Iðkennda fjöldi hefur aukist til muna á síðustu árum hérlendis í brasilísku jiu jitsu. Frá nokkrum aðilum og einu félagi í byrjun, til hundruða iðkennda og sex íþróttafélaga sem stunda íþróttina. Uppruna íþróttarinnar má rekja til Japans. Þróun og myndun hennar átti sér stað í Brasilíu og en þann dag í dag er hún í stöðugri þróun. Íþróttin snýst um það að knýja andstæðing til uppgjafar með liðamóta lásum eða hengingartökum. Brasilískt jiu jitsu fékk heims athygli á 9.áratugnum þegar Royce Gracie kom sá og sigraði í sterkustu bardagalista keppni í heiminum. Bardagaíþróttir hafa verið tengdar við árásahneigða hegðun. Árásarhneigð er hegðun sem hefur það markmið að meiða eða slasa aðra sem vilja forðast slíkt. Upphitunar-, Snerpu-, hraða-, þol- og styrktaræfingar eru helstu þættirnir sem teknir eru fyrir í æfinga köflunum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Handbók í brasilísku jiu jitsu_.pdf | 1.79 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |