is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn í Reykjavík > Tæknisvið / School of Technology > BSc Verkfræðideild (áður Tækni- og verkfræðideild) og íþrótta-, iðn- og tæknifræði -2019 / Department of Engineering (was Dep. of Science and Engineering) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9219

Titill: 
  • Þjálfun barna og unglinga - Skipulag, samhæfing, snerpu- og styrktarþjálfun
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Meginmarkmið og tilgangur þessarar rannsóknar er að kanna hvort þjálfun líkamsþátta sem tengjast samhæfingu, snerpu- og styrktarþjálfun barna og unglinga sé almennt nægjanlega vel sinnt á Íslandi. Það sem mig langaði meðal annars að kanna var hvort munur væri á áliti knattspyrnu- og fimleikaþjálfara hvað þessa þætti varðar. Einnig langaði mig að kanna skipulag félaganna sem þjálfararnir starfa hjá. Spurningalisti var lagður fyrir þjálfara knattspyrnu- og fimleikadeilda barna og unglinga á höfuðborgarsvæðinu sem þjálfa aldurshópinn 9-14 ára.
    Fjöldi þátttakenda í rannsókninni voru 93 þjálfarar, 49 knattpyrnuþjálfarar og 44 fimleikaþjálfarar. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar voru að þekking þjálfara á þessum líkamsþáttum er góð og þeir telja þessa þætti skipta miklu máli í þjálfun barna. Hins vegar telja þeir þessum þáttum í þjálfun barna almennt ekki nægjanlega vel sinnt. Starfsreynsla þjálfara barna og unglinga er mikil og tæplega 40% þjálfara hafa starfað við þjálfun í 10 ár eða lengur. Skipulag félaganna er almennt til fyrirmyndar og vel haldið utan um þætti sem snúa að þjálfurum félaganna, s.s kennsluskrá, gögn og þjálfarafundi.
    Lykilorð; börn, þjálfun, samhæfing, snerpa, styrkur, skipulag, knattspyrna, fimleikar.

Samþykkt: 
  • 16.6.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/9219


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
haukurmarhjartarson_skemman.pdf918.79 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna