is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9250

Titill: 
  • Hvernig geta aðferðir heimspekinnar aukið lýðræði í skólastarfi?
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Sýnt hefur verið fram á víða um heim að lýðræðislegir skólar stuðla að lýðræðislegu samfélagi og meiri gæðum í menntun. Grundvöllur þess að þjóðfélagi farnist vel er að borgararnir taki ábyrgð á sjálfum sér og ætti markmið menntunar að vera að nemendurnir verði hæfir til sjálfsábyrgðar, gagnrýninnar hugsunar og hæfir til þess að leysa persónuleg og samfélagsleg vandamál. Leiðin að því marki eru lýðræðislegir skólar sem leggja áherslu á að þjálfa sjálfstjórn hjá nemendum og þroska lýðræðislega eiginleika: sjálfsábyrgð, umburðarlyndi og þolinmæði. Markmiðið á að vera að nemendur verði færir um að lifa farsællega í lýðræðisríki og taki ákvarðanir sem hvorki skaða þá sjálfa né aðra eða umhverfið. Hefðbundnir kennsluhættir sem byggjast á millifærslu staðreynda frá kennara til nemenda er ekki rétt aðferð til menntunar frekar ætti að ýta undir forvitni nemenda. Í lýðræðislegum skóla hafa nemendur eitthvað um nám sitt að segja og skólastofan ætti að vera staður umræðu, rannsóknar og gagnkvæmrar virðingar.

Samþykkt: 
  • 20.6.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/9250


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Adalheidur_B.Ed..pdf263.4 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna