Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9315
Útivistarsvæðinu og gönguleiðinni inn Reykjadal í Ölfusi hafa verið gerð góð skil í þessari ritgerð en leitast var við a svara meginmarkmiðum verkefnisins sem voru eftirfarandi:
• Hvernig má styrkja Reykjadal í Ölfusi sem útivistarsvæði svo hann fái staðið undir væntingum íbúa og ferðamanna sem um ókomna framtíð eiga rétt á að upplifa dalinn með sem bestum hætti?
• Þolir gönguleiðin inn Reykjadal þá miklu umferð gangandi, hjólandi og ríðandi vegfarenda sem um hana fara?
• Hvernig má lagfæra og bæta núverandi gönguleið inn Reykjadal?
Í upphafi var hafist handa við að skoða náttúrufarslegar forsendur svæðisins. Í framhaldinu voru framkvæmdar landslagsgreiningar. Til að skila sem bestum árangri var ákveðið að skipta gönguleiðinni í níu landslagsheildir og greina þannig sérkenni hvers svæðis. Í ljósi þessara greininga og upplifun höfundar á svæðinu var síðan metið hvaða aðgerðir væri nauðsynlegt a grípa til svo svæði mættið anna þeim fjölda
útivistarfólks og ferðamanna sem sækja í Reykjadal ár hvert.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BS Laufey Sif Lárusdóttir.pdf | 126.3 MB | Lokaður | Heildartexti |