is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9317

Titill: 
  • Tökum lagið í tungumálakennslu : notkun tónlistar í tungumálakennslu skoðuð
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Markmið þessarar rannsóknar er að skoða tónlistarnotkun hjá tungumálakennurum í grunnskólum Íslands. Innlend rannsókn frá 2006 sýndi að enskukennarar nýttu sér ekki tónlist mikið í kennslu en á móti þá þótti nemendum það vera gagnleg leið til að læra nýtt tungumál. Þessi rannsókn var ætluð til þess að athuga hvernig kennarar nýttu sér tónlist í kennslu ef þeir gerðu það á annað borð. Margar erlendar rannsóknir hafa sýnt fram á miklar framfarir í færni, orðaforða og framburði þegar tónlist hefur verið notuð sem verkfæri í kennslu nýrra tungumála. Niðurstöður könnunarinnar eru þær að kennarar nýti sér lítið tónlist í kennslu og megi rekja það til óæskilegrar kennslurýma og þess að kennarar hafa ekki lært hvernig þeir geti nýtt tónlist í kennslu. Nokkrar aðferðir fylgja um það hvernig kennarar geti nýtt sér tónlist sem verkfæri í kennslu.

Samþykkt: 
  • 21.6.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/9317


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Lokaritgerð.pdf582.38 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna