Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9318
Þetta lokaverkefni er lagt fram til fullnustu B.Ed gráðu við Háskóla Íslands Menntavísindasviðs. Útikennsla í Elliðaárdal er yfirskrift verkefnis okkar og er það í tveimur hlutum, annarsvegar greinargerð og hinsvegar verkefnasafn. Í greinagerðinni er fjallað um útikennslu og gildi hennar í námi barna. Umfjöllun um hugsmíðihyggju og kenningar fylgismanna hennar, Dewey, Piaget og Vygosky er að finna í greinagerðinni. Auk þess er komið inn á fjölgreindakenningu Gardners. Gerð er útlistun á hlutverki kennarans í tengslum við útikennslu og undirbúning hennar. Í lokin er fjallað um námsmat og hvaða leiðir við teljum vera ákjósanlegar við mat í útikennslu.
Í verkefnasafninu er gerð grein fyrir tilgangi þess og uppbyggingu. Verkefnasafnið samanstendur af náttúru- og stærðfræði verkefnum sem ætluð eru börnum í 1. – 4. bekk grunnskóla. Greinargóð lýsing er á því útivistarsvæði sem verkefnin eru hugsuð út frá. Elliðaárdalur var valinn vegna þess fjölbreytileika sem hann hefur upp á að bjóða, ásamt því að vera miðsvæðis. Það gefur flestum grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu tök á að komast þangað, hvort heldur fótgangandi eða með strætisvagni.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
greinagerd skemma PDF.pdf | 397.9 kB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna | |
verk loka elísa PDF.pdf | 23.99 MB | Opinn | Verkefnasafn | Skoða/Opna |