is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/931

Titill: 
  • Samstarf fyrirtækja, úthýsing upplýsingakerfa og þekkingarmiðlun
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í þessu verkefni er fjallað um samstarf tveggja þekkingarfyrirtækja,á sviði
    úthýsingar upplýsingakerfa og/eða tölvukerfa og tengdra þátta,við innri og ytri
    samstarfsaðila. Þá er fjallað um samstarf fyrirtækjanna við viðskiptavini á sviði
    úthýsingar. Markmið verkefnisins er að varpa ljósi á þessa samvinnu og reyna
    að sanna eða afsanna eftirfarandi tilgátur:
    Samstarf fyrirtækjaleiðir til betri og ódýrari þjónustu til viðskiptavina.
    Úthýsing
    verkþátta þarf ekki að leiða til þess að þekking tapist út úr
    fyrirtækjum.
    Unnin var fræðileg greining á þremur þáttum sem þóttu einkenna þetta
    viðfangsefni fremur en annað en þeir eru samstarf fyrirtækja og þá einkum
    úthýsing, upplýsingatækni og þekkingarmiðlun. Lykilhugtök varðandi þessa
    þætti voru skilgreind til að brjóta niður tilgátur og leggja grunn að markvissri
    greiningu á sannleiksgildi þeirra.
    Í rannsókninni sem hér var gerð voru tekin tvö djúpviðtöl við forsvarsmenn
    úthýsingarfyrirtækjanna og í framhaldinu vorutekin viðtöl við átján
    viðmælendur sem hafa yfirumsjón með framkvæmd og eftirliti á úthýsingarþáttum viðskiptafyrirtækjanna.
    Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru þær að ekki tókst að sanna ofangreindar
    tilgátur en sterkar vísbendingar komu fram um ýmsa þætti í samstarfi
    fyrirtækjanna sem styðja við það að tilgáturnar gætu verið réttar.
    Lykilorð:
    Samstarf fyrirtækja
    Úthýsing
    Upplýsingatækni
    Þekkingarmiðlun

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri
Samþykkt: 
  • 1.1.2006
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/931


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
samstarfuthysing.pdf540.06 kBTakmarkaðurSamstarf fyrirtækja, úthýsing upplýsingakerfa og þekkingarmiðlun - heildPDF
samstarfuthysing_e.pdf21.98 kBOpinnSamstarf fyrirtækja, úthýsing upplýsingakerfa og þekkingarmiðlun - efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
samstarfuthysing_h.pdf216.26 kBOpinnSamstarf fyrirtækja, úthýsing upplýsingakerfa og þekkingarmiðlun - heimildaskráPDFSkoða/Opna
samstarfuthysing_u.pdf30.83 kBOpinnSamstarf fyrirtækja, úthýsing upplýsingakerfa og þekkingarmiðlun - útdrátturPDFSkoða/Opna