Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/931
Í þessu verkefni er fjallað um samstarf tveggja þekkingarfyrirtækja,á sviði
úthýsingar upplýsingakerfa og/eða tölvukerfa og tengdra þátta,við innri og ytri
samstarfsaðila. Þá er fjallað um samstarf fyrirtækjanna við viðskiptavini á sviði
úthýsingar. Markmið verkefnisins er að varpa ljósi á þessa samvinnu og reyna
að sanna eða afsanna eftirfarandi tilgátur:
Samstarf fyrirtækjaleiðir til betri og ódýrari þjónustu til viðskiptavina.
Úthýsing
verkþátta þarf ekki að leiða til þess að þekking tapist út úr
fyrirtækjum.
Unnin var fræðileg greining á þremur þáttum sem þóttu einkenna þetta
viðfangsefni fremur en annað en þeir eru samstarf fyrirtækja og þá einkum
úthýsing, upplýsingatækni og þekkingarmiðlun. Lykilhugtök varðandi þessa
þætti voru skilgreind til að brjóta niður tilgátur og leggja grunn að markvissri
greiningu á sannleiksgildi þeirra.
Í rannsókninni sem hér var gerð voru tekin tvö djúpviðtöl við forsvarsmenn
úthýsingarfyrirtækjanna og í framhaldinu vorutekin viðtöl við átján
viðmælendur sem hafa yfirumsjón með framkvæmd og eftirliti á úthýsingarþáttum viðskiptafyrirtækjanna.
Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru þær að ekki tókst að sanna ofangreindar
tilgátur en sterkar vísbendingar komu fram um ýmsa þætti í samstarfi
fyrirtækjanna sem styðja við það að tilgáturnar gætu verið réttar.
Lykilorð:
Samstarf fyrirtækja
Úthýsing
Upplýsingatækni
Þekkingarmiðlun
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
samstarfuthysing.pdf | 540.06 kB | Takmarkaður | Samstarf fyrirtækja, úthýsing upplýsingakerfa og þekkingarmiðlun - heild | ||
samstarfuthysing_e.pdf | 21.98 kB | Opinn | Samstarf fyrirtækja, úthýsing upplýsingakerfa og þekkingarmiðlun - efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
samstarfuthysing_h.pdf | 216.26 kB | Opinn | Samstarf fyrirtækja, úthýsing upplýsingakerfa og þekkingarmiðlun - heimildaskrá | Skoða/Opna | |
samstarfuthysing_u.pdf | 30.83 kB | Opinn | Samstarf fyrirtækja, úthýsing upplýsingakerfa og þekkingarmiðlun - útdráttur | Skoða/Opna |