Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9356
Eftirfarandi ritgerð fjallar á lifandi og skemmtilegan hátt um skráningu mína og vinnu með hópi barna í leikskóla úti á landi. Þar tókum við fyrir þemað veturinn og vorum í útinámi mest allan tímann og uppgötvuðum margt skemmtilegt. Byrjað er á að fara yfir þær aðferðir og hugmyndafræði sem notaðar voru við vinnslu verkefnisins. Aðalhugmyndafræðin var í anda Reggio Emilia og fjölgreindakenningu Howard Garners, farið er yfir hvað útinám og útikennsla er í mínum huga og á leikskólanum Undralandi. Ég kynni einnig fyrir ykkur þemanám og hugmyndir sem uppi eru í sambandi við það. Farið er yfir hvað leikskólinn Undraland stendur fyrir og stefnur hans og umhverfi. Þá er farið í skráninguna sjálfa sem er lýst á mjög persónulegan og lifandi hátt í máli og myndum. Ég dreg svo saman niðustöður mínar í umræðukafla og ræði þær. Að endingu fjalla ég um hugleiðingar mínar um útinám og útikennslu og dreg svo saman ritgerðina í niðurlagi.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaritgerð..pdf | 416.65 kB | Lokaður | Heildartexti |
Athugsemd: Til að fá aðgang að ritgerðinni skal haft samband með tölvupósti: erla87@msn.com