is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskólinn á Akureyri > Heilbrigðisvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9372

Titill: 
  • Viðhorf heilbrigðisstarfsfólks hjúkrunardeilda á landsbyggðinni til stjórnunar og líðan í starfi
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Bakgrunnur: Í starfsánægju felst dagleg líðan starfsfólks og huglæg viðhorf til starfsins. Vinnuaðstæður, samskipti við samstarfsfólk og stjórnendur geta haft áhrif á starfsánægju, ásamt stöðugleika stofnana, en nokkuð hefur verið um skipulagsbreytingar undanfarin ár.
    Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna líðan starfsfólks á hjúkrunardeildum og viðhorf þeirra til stjórnunartengdra þátta, hvort munur væri þar á eftir búsetu eða starfsstétt og hvort tengsl væru milli líðanar í starfi og viðhorfa til starfs og stjórnunar.
    Aðferð: Lýsandi þversniðskönnun meðal starfsfólks á meðalstórum heilbrigðisstofnunum landsbyggðarinnar. Spurt var um viðhorf til stofnunar og stjórnunarhátta yfirmanns ásamt spurningum um líðan í starfi. Einnig var lagður fyrir viðhorfakvarði Maslachs, sem mælir kulnun í starfi í þremur þáttum; tilfinningaþroti, hlutgervingu og starfsárangri.
    Niðurstöður: Svarendur voru 274 (4 karlar), svarhlutfall var 75%. Yfirgnæfandi meirihluti var ánægður í vinnunni (90%) og 69% þátttakenda stefndu að því að vera á sama vinnustað næstu ár. Flestir voru ánægðir með næsta yfirmann sinn (78%) og vinnuaðstöðu (72%), en aðeins 47% með æðstu yfirmenn stofnunar. Sárafáir tóku veikindafrí vegna vanlíðanar á vinnustað (4%). Almenn óánægja var með laun (74%). Þriðjungur þátttakenda hafði orðið var við einelti á vinnustaðnum. Kulnun mældist lítil, þ.e. tilfinningaþrot 6,8 (± 4,5), hlutgerving 5,7 (± 4,7) og starfsárangur 22,8 (± 5,2). Marktæk tengsl voru milli líðanar í starfi og viðhorfa til starfs og stjórnunar, einkum varðandi tilfinningaþrot (R2 = 0,29, p<0,001). Landshlutamunur var á starfsánægju og viðhorfum til stjórnunar í nokkrum þáttum. Á Austur- og Norðurlandi voru þátttakendur oftar ánægðir en á Suður- og Vesturlandi. Færri þættir sýndu mun eftir starfsstéttum. Sjúkraliðar mældust með meira tilfinningaþrot en aðrir (p<0,05) og hjúkrunarfræðingar mældust hærri í starfsárangri en ófaglærðir starfsmenn deildar (p<0,05).
    Ályktun: Starfsfólk hjúkrunardeilda er að mestu ánægt í vinnunni. Viðhorf til stjórnunar tengjast starfsánægju og líðan í starfi. Nokkur munur er á viðhorfum, starfsánægju og líðan eftir búsetu og starfsstéttum.
    Lykilorð: Stjórnun, starfsánægja, líðan í starfi.

Styrktaraðili: 
  • Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga.
    Rannsóknarsjóður Hrafnistu.
Athugasemdir: 
  • Töluverðar breytingar hafa orðið á innra skipulagi heilbrigðisstofnana í tengslum við innleiðslu nýrrar hugmyndafræði og áherslur í stjórnun og rekstri. Opinberar stofnanir hafa á seinustu árum tekið upp stjórnunarstíl samkeppnisfyrirtækja sem byggir m.a. á árangurstengdu stjórnunarskipulagi. Markmiðið með þessum umbótum var að tryggja skilvirka stjórnun og skipulag sem miðaði að góðri þjónustu og að starfsfólki liði sem best. Í þessari rannsókn beindist athyglin að viðhorfum starfsfólks meðalstórra heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni til stjórnunar og líðan þess á vinnustað. Spurt var í rannsókninni hvort munur væri á viðhorfum heilbrigðisstarfsfólks til stjórnunar eftir starfsstétt og búsetu. Einnig var reynt að komast að raun um hvort tengsl væru á milli viðhorfa heilbrigðisstarfsfólks til stjórnunar og líðan þess í starfi. Markmið rannsóknarinnar var m.a. að varpa ljósi á hugsanleg áhrif viðhorfa starfsfólks til stofnunar sinnar og samskipta á vinnustað á starfsánægju og líðan.
Samþykkt: 
  • 22.6.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/9372


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Viðhorf til stjórnunar.pdf1.98 MBOpinnPDFSkoða/Opna