Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9378
Greinargerð þessi fylgir námsspilinu Náttúrulega! sem er spurningaspil í náttúrufræði fyrir unglingastig. Í fjölgreindakenningu Howards Gardner er fjallað um að einstaklingar séu ólíkir og þurfi því ólíka nálgun að námsefni. Gardner kom með hugmynd að átta greindum sem allir byggju yfir en á mismunandi hátt og mis mikið. Benjamin S. Bloom kom einnig með kenningu um hvernig nálgast eigi ólíka einstaklinga en hún leggur áherslu á námsmarkmið og mannlega hæfileika. Við gerð spilsins var unnið að því að ná fram sem flestum markmiðum Aðalnámsskrár í náttúrufræði en einnig voru kenningar Gardner og Bloom, Piaget og Dewey hafðar til hliðsjónar.
Markmið spurningaspilsins Náttúrulega! er að efla áhuga nemenda á náttúrufræði og gera námið skemmtilegra og fjölbreyttara.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Greinargerð - Elsa Gehringer og Þórdís Eva Þórhallsdóttir.pdf | 371.95 kB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna | |
titilsíða.pdf | 73.14 kB | Opinn | Titilsíða | Skoða/Opna | |
Viðaukar 1 og 2.pdf | 441.5 kB | Opinn | Viðauki | Skoða/Opna |