is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9382

Titill: 
  • Falinn fjársjóður : efling tónlistarstarfs í leikskóla sem hefur sameinast við grunn- og tónlistarskóla
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í ritgerðinni er fjallað um mikilvægi tónlistar fyrir börn í leikskóla og rannsókn sem gerð var meðal stjórnenda og tónlistarkennara í sameinuðum skóla. Sameinaðir voru fjórir skólar; tveir grunnskólar, tónlistarskóli og leikskóli. Viðtalsrannsókn var gerð í mars 2011. Tvö ár eru síðan skólarnir voru sameinaðir og reynsla stjórnendanna og kennaranna mislöng. Leitast var við að skoða hvort það fagmenntaða tónlistarfólk sem vinnur í tónlistar- eða grunnskóladeildum skólans gæti nýst í leikskóladeildinni líka þar sem nú eru þetta allt deildir innan sama skólans.
    Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru þær að þrátt fyrir hindranir sem gætu staðið í vegi fyrir framkvæmdinni, eru tónmennta- og tónlistarkennarar almennt jákvæðir gagnvart því að kenna líka við leikskóladeildina. Þeim þætti það spennandi verkefni, áhugavert og krefjandi.

Samþykkt: 
  • 22.6.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/9382


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Falinn fjarsjodur_Lokaverkefni_Gudrun_Kristinsdottir2.pdf313.34 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna