Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9397
Í þessari ritgerð er gerður samanburður á samræmdum könnunarprófum í íslensku í 7. bekk og á samræmdum prófum í Hollandi. Samræmdu prófin í Hollandi eru lögð fyrir 11-12 ára gamla hollenska grunnskólanema og tilgangur þeirra er allt annar en könnunarprófanna á Íslandi. Á meðan niðurstöður samræmdra prófa á Íslandi eru notaðar til að fylgjast með námsferli hvers og eins eru niðurstöður samræmdu lokaprófanna í Hollandi nýttar til að beina nemendum inn á þær námsbrautir sem þeim standa til boða.
Litið er á móðurmálshluta prófanna og spurningar þeirra bornar saman. Ljósi er varpað á hvað er líkt og ólíkt með prófunum og hvernig niðurstöður þeirra eru nýttar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaritgerdin.doc | 160.5 kB | Opinn | Microsoft Word | Skoða/Opna |