Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9413
Markmið þessa lokaverkefnis var að kanna tölvufíkn á meðal unglinga og áhrif mikillar tölvunotkunar á heilbrigði unglinga og námsárangur. Meðal þess sem var rannsakað var tölvufíkn almennt og áhrif tölvunotkunar á líkamlegt ástand og heilbrigði. Þá voru rannsökuð áhrif tölvunnar á svefnvenjur unglinga ásamt áhrifum tölvunotkunar á námsárangur. Við veltum fyrir okkur eftirfarandi spurningum:
Eru unglingar á Íslandi haldnir tölvufíkn?
Hvaða áhrif hefur of mikil tölvunotkun á heilbrigði og námsárangur unglinga?
Einnig var rannsakað hvort munur væri á fyrrgreindum þáttum milli kynja. Rannsóknargagna var aflað með megindlegum rannsóknaraðferðum en spurningalisti var lagður fyrir 119 unglinga á aldrinum 14–16 ára, 60 stráka og 59 stelpur.
Helstu niðurstöður voru að stór hluti unglinga eyðir töluverðum tíma í tölvunni, tölvunotkun hefur áhrif á heilbrigði unglinga, hreyfingu og svefnvenjur. Einnig hefur tölvunotkun dregið úr námsárangri hjá stórum hluta unglinga og haft áhrif á það hvort þeir ljúki heimalærdómi.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaverkefni.pdf | 976.39 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
Kápa.pdf | 30.42 kB | Opinn | Forsíða | Skoða/Opna |