Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9418
Lokaverkefni þetta er samsett af greinargerð og verkefnahandbók. Þetta er lokaverkefni til B.Ed. prófs í Leikskólakennarafræðum við Háskóla Íslands vorið 2011.
Fræðileg umfjöllun í greinagerðinni er byggð á kenningum Lee Vygotsky, Jean Piaget og John Dewey. Börn læra af umhverfi sínu með því að taka þátt í þeim verkefnum sem eru fyrir hendi hverju sinni. Í daglegu lífi má sjá og upplifa hinar ýmsu birtingamyndir stærðfræðinnar.
Stærðfræði er ekki bara tölur á blaði og ekki einungis lærð innan dyra. Því er gott að nýta tækifærið og færa stærðfræðinámið út í umhverfið og læra um leið á nánasta umhverfi leikskólans og kenna börnum að ganga um náttúruna. Í ljósi þess að börn hreyfa sig æ minna er einnig tilvalið að tengja stærðfræðina við útikennslu og hreyfingu um leið. Þá upplifa börnin skemmtilega hreyfingu og óbeina stærðfræðikennslu. Í þessu verkefni er leitast við að setja fram hugmyndir að úti verkefnum og leikjum sem tengjast stærðfræðinni við mismunandi árstíðir.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaverkefni greinagerð.pdf | 302.71 kB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna | |
Lokaverkefni handbók.pdf | 1.7 MB | Lokaður | Handbók |