Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9452
Lokaverkefni þetta til B.Ed prófs á Menntavísindasviði Háskóla Íslands er í tveimur hlutum. Annars vegar greinargerð og hins vegar handbók. Greinargerðin fjallar um náttúrufræði og sköpun í kennslu barna og hlutverk kennara í námi sem byggir á þessu tvennu. Einnig er fjallað um kenningar tveggja fræðimanna sem hafðar eru í huga við gerð handbókarinnar. Markmið greinargerðarinnar er að skýra betur hvers vegna viðfangsefni handbókarinnar er mikilvægt börnum og hvernig ætlast er til að hún sé nýtt í kennslu barna.
Með greinargerðinni fylgir handbók með verkefnum fyrir börn þar sem einblínt er á náttúruna sem námsefnið og sköpun sem kennsluaðferð. Við val á verkefnum í handbókina var tekið mið af mismunandi umhverfi sem gæti verið til staðar í nágrenni leikskóla. Markmið handbókarinnar er að vera verkefna- og hugmyndasafn kennara sem hægt er að grípa til þegar hugmyndirnar koma ekki af sjálfu sér.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Handbók.pdf | 195.54 kB | Opinn | Handbók | Skoða/Opna | |
Greinargerð.pdf | 1.2 MB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna |