is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9475

Titill: 
  • Útimatreiðsla í skólastarfi : handbók ætluð heimilisfræðikennurum
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Verkefni þetta saman stendur af greinargerð og handbók. Hvort tveggja er ætlað heimilisfræðikennurum, sem vilja færa kennsluna út í náttúruna með markvissum hætti. Tveir heimilisfræðikennarar veittu okkur viðtöl og deildu með okkur skoðunum sínum um skort á efni, sem stutt gæti heimilisfræðikennara í viðleitni þeirra til að hefja kennslu í útimatreiðslu. Einnig var rætt við grunnskóla- og leikskólakennara um efnið. Kom þá berlega í ljós þörfin fyrir aukinn skilning á útimatreiðslu og vöntun á frekari skilningi á möguleikum þessarar vinnuaðferðar. Í framhaldi af því lögðum við upp með þá hugmynd að búa til handbók um útimatreiðslu fyrir heimilisfræðikennara. Rannsóknarspurning okkar er þessi: Hvernig er hægt að kenna útimatreiðslu í heimilisfræði?
    Helstu niðurstöður rannsóknar okkar leiddu í ljós, að þörf er fyrir upplýsingar um útimatreiðslu og handbók, sem lýsir þeim áhöldum, sem hugsanlegt væri að nota, og kynnir einnig þær aðferðir, sem nýta mætti úti í náttúrunni. Niðurstöður sýndu einnig, að með því að vinna bæði úti og inni með heimilisfræði, fáum við nýja sýn á viðfangsefnið, meiri fjölbreytni og aukna tengingu við umhverfi og náttúru. Auk þess fá nemendur meiri hreyfingu og frískt loft í lungun.

Samþykkt: 
  • 24.6.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/9475


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Greinagerð 2011 Skemma.pdf360.42 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna
Skemma.pdf14.58 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna