Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9475
Verkefni þetta saman stendur af greinargerð og handbók. Hvort tveggja er ætlað heimilisfræðikennurum, sem vilja færa kennsluna út í náttúruna með markvissum hætti. Tveir heimilisfræðikennarar veittu okkur viðtöl og deildu með okkur skoðunum sínum um skort á efni, sem stutt gæti heimilisfræðikennara í viðleitni þeirra til að hefja kennslu í útimatreiðslu. Einnig var rætt við grunnskóla- og leikskólakennara um efnið. Kom þá berlega í ljós þörfin fyrir aukinn skilning á útimatreiðslu og vöntun á frekari skilningi á möguleikum þessarar vinnuaðferðar. Í framhaldi af því lögðum við upp með þá hugmynd að búa til handbók um útimatreiðslu fyrir heimilisfræðikennara. Rannsóknarspurning okkar er þessi: Hvernig er hægt að kenna útimatreiðslu í heimilisfræði?
Helstu niðurstöður rannsóknar okkar leiddu í ljós, að þörf er fyrir upplýsingar um útimatreiðslu og handbók, sem lýsir þeim áhöldum, sem hugsanlegt væri að nota, og kynnir einnig þær aðferðir, sem nýta mætti úti í náttúrunni. Niðurstöður sýndu einnig, að með því að vinna bæði úti og inni með heimilisfræði, fáum við nýja sýn á viðfangsefnið, meiri fjölbreytni og aukna tengingu við umhverfi og náttúru. Auk þess fá nemendur meiri hreyfingu og frískt loft í lungun.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Greinagerð 2011 Skemma.pdf | 360.42 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
Skemma.pdf | 14.58 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |