is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9490

Titill: 
  • Ráðningarferlið hjá íslenskum fjármálafyrirtækjum
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • This project is the final project of the BSc-degree in Business Studies at the University of Akureyri. The first part of the project is about the theoretical aspect of the employee selection process and the methods used to select successful candidates. The latter part of the project will present the conclusions of the investigation. The study was conducted among the five largest banks in Iceland.
    The following question was put forward:
    What methods do Icelandic banks use to evaluate potential candidates?
    Results of the investigation showed that the banks all used advertisements on their external and internal websites. Most of the banks utilise employment agencies but only in a few cases and mostly when managers and specialists are being employed.
    Speculative applications and observations are also used to select candidates, but not exclusively as other techniques are also used in conjunction with these methods. When it comes to evaluating the applicants, the banks all use standard interviews and verbal recommendations. Methods such as personality tests and work scenarios are used on rare occasions by some banks but mainly for managers and specialists.
    Keywords:
    • Human resource management
    • Hiring process
    • Job search
    • Employee selection
    • Recruitment

  • Útdráttur er á ensku

    Þetta verkefni er lokaverkefni til BSc.-gráðu í viðskiptafræði við Háskólann á Akureyri. Í fyrri hluta verkefnisins er fjallað á fræðilegan hátt um ráðningarferlið hjá fimm íslenskum bönkum og þær aðferðir sem beita má við öflun og val á umsækjendum. Í seinni hluta verkefnisins eru niðurstöður rannsóknarinnar kynntar. Framkvæmd var rannsókn á meðal fimm stærstu banka landsins.
    Eftirfarandi rannsóknarspurning var sett fram:
    Hvaða aðferðum beita íslenskir bankar við öflun og mat á umsækjendum?
    Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að hjá öllum bönkunum er notast við auglýsingar á innri og ytri vefsíðum bankanna. Flestir bankarnir notast við ráðningastofur en aðeins í fáum tilfellum og þá aðallega þegar um stjórnunar- og sérfræðistörf er að ræða. Óumbeðnar umsóknir og ábendingar eru einnig notaðar við öflun umsækjenda en aldrei eingöngu, aðrar aðferðir eru ávallt notaðar samhliða. Þegar kemur að því að meta umsækjendur notast allir bankarnir við stöðluð viðtöl og munnleg meðmæli. Aðferðir eins og persónuleikapróf og vinnusýnishorn eru notaðar í einstaka tilfellum hjá sumum bönkunum en það á aðallega við þegar ráðið er í stjórnunar- og sérfræðistörf.
    Lykilorð:
     Starfsmannastjórnun
     Ráðningarferli
     Starfsgreining
     Starfsmannaval
     Öflun umsókna

Athugasemdir: 
  • Athugasemdir er á ensku Verkefnið er lokað
Samþykkt: 
  • 27.6.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/9490


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
AsdisAnnaGudsteins.pdf728.43 kBLokaðurHeildartextiPDF