is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9492

Titill: 
  • Skólafærni-athugun
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Viðfangsefni þessa verkefnis er að kanna notagildi matstækisins Skólafærni-athugun í skóla án aðgreiningar. Skólafærni-athugun er færnimiðað matstæki sem notað er til að mæla þátttöku og færni grunnskólabarna á aldrinum 6-12 ára. Matstækið er þverfaglegt sem þýðir að það er ekki eingöngu til notkunar af einhverri einni fagstétt, heldur er það ætlað sem samvinnuverkefni fagaðila sem vinna náið með því barni sem á að meta hverju sinni.
    Sjónum er beint að þátttöku og frammistöðu barns í skólanum og markmiðið er tvíþætt; að greina hvað stuðlar að vanda barnsins og reyna að finna út hvers konar aðlögun gæti aukið færni þess í skólaumhverfinu.
    Í skóla án aðgreiningar eiga allir nemendur að fá tækifæri til náms í almennum bekk með sínum jafnöldrum, burt séð frá sérþörfum. Áhersla er lögð á einstaklingsmiðað nám og reynt að finna leiðir til að aðlaga námsefni og námsumhverfi að hverjum nemanda. Skólafærni-athugun gæti verið öflugt tæki í höndum kennara og þroskaþjálfa í almennum grunnskólum til þess að bera kennsl á vanda nemenda og leiða þá að lausnum.

Samþykkt: 
  • 27.6.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/9492


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BA 3.pdf4.24 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna