Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9500
Í þessari ritgerð er fjallað um áhrif trúarbragðafræðslu á fordóma og umburðarlyndi. Sérstök áhersla er lögð á samfélagið og grunnskólann og hvort að fræðsla um trúarbrögð geti stuðlað að minni fordómum og meira umburðarlyndi. Einnig er aðeins komið inn á helstu trúarbrögð heims, stöðu og útbreiðslu þeirra, ásamt því að skoðuð eru atriði í Mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna og Stjórnarskrá Íslands. Ritgerðin er að miklu leyti skrifuð með það í huga að skoða þær breytingar sem hafa orðið á vestrænum samfélögum síðustu ára. Skoðuð eru atriði sem hafa verið að gerast bæði hérlendis og í Evrópu.
Að lokum langar mig að þakka Gunnari J. Gunnarsyni fyrir aðstoðina við þessa ritgerð og fyrir að hafa vakið áhuga minn á þessu viðfangsefni.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Gildi trúarbragðafræðslu í fjölmenningarsamfélagi og í grunnskólumPDF.pdf | 255.21 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |