Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9544
Ritgerð þessi er lokaverkefni til B.A. prófs í uppeldis- og menntunarfræði við menntavísindasvið Háskóla Íslands. Í ritgerðinni er fjallað um sorgarferli barna sem verða fyrir þeirri reynslu, í leikskóla eða yngstu bekkjum grunnskóla, að missa foreldri sitt.
Sjónum er beint að viðbrögðum ungra barna við dauðanum og sorgarviðbrögðum þeirra. Börn á leikskóla og í yngstu bekkjum í grunnskólum landsins skipta þúsundum og því alltaf einhverjir á ári hverju sem verða fyrir því áfalli að missa foreldri sitt. Tekið var meðal annars viðtal við leikskólastjórnanda auk grunnskólakennara sem starfað hafa í nánum tengslum við börn sem orðið hafa fyrir foreldramissi.
Fræðsla er áhrifarík leið og mikilvægt er að leikskóla- og grunnskólakennarar hafi greiðan aðgang að upplýsandi efni varðandi foreldramissi barna. Að þeir hafi tækifæri og stuðning til þess að fræðast um viðbrögð og það ferli sem barnið gengur í gegnum, í þeim tilgangi að hlúa og hjálpa því að takast á við tilfinningar sínar á sem farsælastan hátt.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Sorgarferli barna við foreldra missi, lokaskil.pdf | 268.23 kB | Lokaður | Heildartexti | ||
titilsíða lokaritgerð.pdf | 63.93 kB | Opinn | Titilsíða | Skoða/Opna |