Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/954
Eftirfarandi ritgerð, er unnin sem lokaverkefni til B.Ed.-prófs við kennaradeild Háskólans á Akureyri á vormisseri 2004. Viðfangsefnið er að athuga hvort börn sem fengu markvissa tónlistarkennslu í leikskólanum Kópasteini og útskrifuðust þaðan fyrir tíu árum, hafi frekar lagt stund á einhverskonar tónlistarnám eftir leikskóladvölina, heldur en börn sem ekki fengu markvissa tónlistarkennslu í leikskóla.
Í verkefninu er greint frá hugmyndafræði tónlistaruppeldis. Þar er fjallað um tónlist og tónlistarkennslu út frá ýmsum hliðum, fjallað er um markmið með tónlistarkennslu og áhrif tónlistar á börn, þá er fjallað um erfðir og umhverfi, en umhverfið skiptir miklu máli í öllu námi, það hefur sýnt sig að hægt er að byrja ótrúlega snemma að kenna börnum tónlist. Greint er frá rannsóknum og sagt frá leikskólum sem leggja áherslu á tónlistarkennslu og hvernig hún er útfærð. Auk þess er fjallað um Edgar Willems, en hann setti fram kenningu um tónlistarkennslu fyrir börn og var hans aðferð notuð með börnunum á Kópasteini sem eru þátttakendur í rannsókninni. Því næst er skýrt frá aðferðafræðinni bak við rannsóknina. Lítið virðist hafa verið rannsakað um áhrif tónlistarkennslu í leikskóla á áframhaldandi tónlistarnám barna, auk þess sem lítið fannst af rannsóknum sem gætu tengst efninu.
Seinni hluti ritgerðarinnar er svo úrlausn rannsóknarinnar auk umfjöllunar um hana. Í rannsókninni kom fram að það er fylgni með tónlistarkennslu sem börn fengu í leikskóla og tónlistarnámi barna síðar á ævi þeirra. En það eru eflaust líka einhverjir ytri þættir, sem ég rannaskaði ekki sem geta skipt máli fyrir niðurstöðuna. Draga má þá ályktun að frekari rannsókna á áhrifum tónlistarnámi barna sé þörf. Engu að síður vekur rannsóknin spurningar um tónlistarkennslu í leikskólum sem vert er að skoða betur í framtíðinni.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
borntonlist.pdf | 592.66 kB | Takmarkaður | Börn og tónlist - heild | ||
borntonlist-e.pdf | 82.22 kB | Opinn | Börn og tónlist - efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
borntonlist-h.pdf | 112.75 kB | Opinn | Börn og tónlist - heimildaskrá | Skoða/Opna | |
borntonlist-u.pdf | 85.98 kB | Opinn | Börn og tónlist - útdráttur | Skoða/Opna |