is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9552

Titill: 
  • Kristni og staða trúarinnar í leikskólum Akureyrar
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Þessi lokaritgerð fjallar um kristni í leikskólastarfi. Unnið var með rannsóknarspurningarnar: Hver er ástæðan fyrir kristni í leikskólum? Hver er staða leikskóla gagnvart trú, með áherslu á kristna trú, og gagnvart þjóðkirkjunni?
    Staða þjóðkirkjunnar er sterk á Íslandi. Í grunnskólum landsins er kennd bæði kristinfræði og trúarbragðafræði en í leikskólum hafa kennarar frjálsari hendur hvað trúmál varðar. Þar á samkvæmt lögum og námskrá að vinna með kristna arfleifð íslenskrar menningar. Í ritgerðinni er rakið hvernig vægi kristinfræðikennslu hefur minnkað í skólum landsins.
    Til að kanna stöðu trúfræðslu í leikskólum á Akureyri gerði höfundur rannsókn á 7 af 14 leikskólum í bænum. Niðurstöður eru settar fram í súluritum og texta. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru að staða leikskólanna gagnvart þjóðkirkjunni einkennist af skilningi og virðingu fyrir hlutverki hennar og starfi.
    Trúfrelsi er mannréttindi og foreldrar eiga rétt á að trúar-og siðferðislegt uppeldi barna þeirra sé í samræmi við þeirra eigin sannfæringu. Með trúfræðslu er þó ekki verið að brjóta í bága við lög sem kveða á um rétt foreldra og trúfrelsi. Höfundur telur ekkert það felast í leikskólastarfi sem innræti ákveðin trúarbrögð. Það getur hins vegar valdið misskilningi þegar skýrar reglur vantar eins og höfundur komst að raun um við skrif ritgerðarinnar. Niðurstaða hans er að trúfræðsla eigi að vera í námskrám skólanna, en grundvallaratriði að þar fari fram fræðsla en ekki boðun. Þetta þarf að koma fram í sameiginlegri aðalnámskrá sem gefa á út árið 2011.
    Extract
    This thesis is about Christianity in preschools. The research questions were: Why Christianity in preschools? What is the preschools´ place when it comes to religion, especially Christian religion, and the schools´ relationship to the Lutheran national church of Iceland?
    The Lutheran national church of Iceland has a strong standing in the society. Both Christianity and other religions are taught in public schools but in preschools, teachers are not as bound to curriculum when it comes to religion. According to law and the national curriculum they are supposed to work with the Christian heritage of Icelandic culture. This thesis describes how teaching about Christianity has decreased in public schools. To check the status of religious teaching in preschools in Akureyri the author carried out a small research in 7 of 14 preschools in town. The results are presented in column charts and text. The main findings are that the schools´ relationship to the national church is characterized by understanding and respect for its role and practice.
    Freedom of religion is a human right and parents have the right to bring up their children according to their own conviction in religion and morality. Religious teaching in schools does not break laws protecting parents´ rights and freedom of religion. It is the author’s opinion that preschool teachers are not teaching anything that indoctrinates certain religion. However, lack of clear ground rules may cause misunderstandings, as the author realized when writing this thesis. His conclusion is that religious education should be a part of a school’s curriculum, but in principle by teaching, not preaching. This has to be made clear in the new prospective national curriculum for Icelandic schools which is due in 2011.

Samþykkt: 
  • 28.6.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/9552


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Eva Hildur, B.e.d Kristni.pdf611.16 kBLokaðurHeildartextiPDF
útdráttur.pdf60.65 kBOpinnútdrátturPDFSkoða/Opna