Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9577
Náttúra og saga í Nesi við Seltjörn - verkefnasafn og greinargerð
Greinargerð þessi og verkefnasafn er lokaverkefni til B.Ed.- prófs frá menntavísindasviði Háskóla Íslands.
Í verkefnasafninu eru þrettán verkefni sem tengjast á einn eða annan hátt Urtagarðinum í Nesi á Seltjarnarnesi og/eða Lækningaminjasafni Íslands sem starfrækt er í Nesstofu á sama stað. Sagt er frá tilurð og skipulagi Urtagarðsins sem opnaður var á safnasvæðinu í Nesi sumarið 2010.
Í greinagerðinni er fjallað um kennslufræðilegan bakgrunn verkefnanna, þar á meðal grenndarnám og safnanám. Sú kennslufræði sem verkefnasafnið byggir að mestu leyti á eru kenningar Vygotskys og Deweys sem báðir fjölluðu um nám og þroska barna. Áhersla er lögð á mikilvægi reynslunnar og upplifunar í námi en einnig er fjallað um lykilhugtak í kenningum Vygotskys; svæði mögulegrar þróunar (e. zone of proximal development).
Að lokum er verkefnasafnið kynnt og gert grein fyrir markmiðum verkefnanna.
Nafn![]() | Stærð![]() | Aðgangur![]() | Lýsing![]() | Skráartegund | |
|---|---|---|---|---|---|
| Náttúra og saga í ... .pdf | 410KB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna | |
| Náttúra og saga í ... .pdf | 616KB | Opinn | Verkefnasafn | Skoða/Opna |