is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9591

Titill: 
  • Líkamlegt atgervi bakvarða í íslenskum körfuknattleik
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Markmið rannsóknarinnar er að kanna tengsl líkamlegs atgervis bakvarða í körfuknattleik á Íslandi og tölfræðilegs framlags þeirra í leikjum hjá KKÍ (Körfuknatttleikssamband Íslands). Athugað er hvort fylgni sé á milli þessara þátta.
    Rannsóknarspurningarnar sem lagðar voru fram eru hver er líkamleg afkastageta bakvarða í íslenskum körfuknattleik og er fylgni á milli líkamlegrar afkastagetu og árangurs í leikjum á vegum KKÍ? Með þessum rannsóknarspurningum eru eftirfarandi líkamlegir þættir skoðaðir, liðleiki, stökkkraftur, þol, hraði og líkamssamsetning.
    Tilgáta rannsóknarinnar er; því betra sem líkamlegt ástand leikmanns er því betra framlagi nær hann á velli, þ.e.a.s. fleiri skoruð stig, fleiri tekinn fráköst, fleiri gefnar stoðsendingar og meiri tölfræðilegur árangur inn á velli en leikmanns í verra líkamlegu ástandi. Skoðað er hversu hátt leikmaður hoppar, hratt hann hleypur, hversu mikla fituprósentu hann hefur, hversu mikinn liðleika hann hefur og hversu mikið þol hann er með.
    Þátttakendur í rannsókninni voru fimm bakverðir í körfuknattleik á Íslandi og voru þeir mældir einu sinni. Byrjað var að mæla hæð og þyngd og þar á eftir var líkamsamsetning mæld. Eftir það voru framkvæmdar uppstökksmælingar, sprettmælingar, liðleikamælingar og endað var á þolmælingu.
    Niðurstöður sýndu að lítil fylgni var á milli afkastagetu bakvarða á Íslandi og framlagi í leik. Marktækni rannsóknarinnar er ekki mikið vegna þess hver úrtakið var lítið. Rannsakandi telur að tilgátan hefði staðist ef fleiri leikmenn hefðu mætt í mælingarnar.
    Í framtíðinni er svo hægt að nýta þessi rannsóknargögn í áframhaldandi rannsóknir á framherjum eða miðherjum. Einnig er vonandi að þjálfarar kynni sér þau faglegu vinnubrögð sem notuð voru í þessari rannsókn til að mæla líkamlegt afgervi leikmanna sinna.

Samþykkt: 
  • 29.6.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/9591


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Lokaverkefni í íþróttafræði.pdf1.04 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna