Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9598
Í þessu B.Ed. verkefni við Menntavísindasvið Háskóla Íslands er fjallað um kenningar sem lagðar eru til grundvallar einstaklingsmiðuðu námi. Fjallað er um hugtakið einstaklingsmiðað nám almennt og hvað í því felst. Einnig eru því gerð skil hvað felst í einstaklingsmiðaðri kennslu. Rætur einstaklingsmiðunar eru kannaðar sem og tengslin við fjölgreindakenningu Gardners. Kannað er með hvaða hætti kennarar velja að vinna að námsáætlunum og markmiðssetningu með nemendum sínum og í því samhengi eru ólíkir námsstílar skoðaðir og mikilvægi þess að þekkja sinn eigin námsstíl velt upp. Einnig er skoðað hvernig innleiðing einstaklingsmiðunar í grunnskólum Reykjavíkur hefur farið fram og með hvaða hætti fræðsluyfirvöld Reykjavíkurborgar hafa aðstoðað skóla við að taka upp starfshætti einstaklingsmiðunar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
lok.pdf | 856.71 kB | Lokaður | Heildartexti | ||
IngveldurR_kapa.pdf | 31.15 kB | Opinn | Forsíða | Skoða/Opna |