is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9617

Titill: 
  • „Ef þú ert ekki fæddur kennari ertu ekki nægilega vel þjálfaður til að takast á við kennarastarfið" : rannsókn á agastjórnun í skóla á Reykjavíkursvæðinu og notkun á umbunarkerfum til að bæta hegðun nemenda.
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Markmið rannsóknarinnar var að varpa ljósi á hvernig staðið er að agastjórnun í skóla á Reykjavíkursvæðinu og hvernig umbunarkerfi eru notuð til að bæta hegðun nemenda. Skólinn notar ekki heildstætt hugmyndakerfi í nálgun sinni og var skoðað til samanburðar hvernig staðið er að málum í skóla sem styðst við slíkt kerfi. Rannsóknin er byggð á viðtölum við stjórnendur skólanna og umsjónarkennara sem og vettvangsskoðunum. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að meðferð agamála taki mið af þolmörkum kennara gagnvart hegðun og þekkingu þeirra á hegðunarröskunum og hegðunarvandkvæðum sem og þekkingu á leiðum til úrbóta. Kennararnir sem rætt var við nota allir umbunarkerfi en eru sammála um að þekking á umbunarkerfum og agastjórnun sé of lítil við brautskráningu frá kennaradeild og sýna niðurstöður rannsóknarinnar að þekkingarleysið leiðir til mistaka. Stórauka þarf fræðslu til kennaranema um hegðunarröskun, hegðunarvandkvæði og agastjórnun svo þeir séu vel í stakk búnir til að takast á við kennarastarfið.

Samþykkt: 
  • 29.6.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/9617


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
KristinBjarna_Lokaritgerð.pdf516 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna