Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9640
Greinagerð þessi er meðfylgjandi lokaverkefni til BA-‐prófs í þroskaþjálfafræðum við Háskóla Íslands. Verkefnið felst í hljómdiski með fjórum lögum sem eru sérstaklega samin með það að leiðarljósi að efla börn með þroskaskerðingu til að öðlast meiri þroska og færni. Lögin fjögur eru: 1) lag til eflingar á umhverfis-‐, félags-‐ og sjálfsvitund, 2) lag til þjálfunar á nýrri færni og 3) lag með félagshæfnisögu og 4) slökunarstef fyrir skynörvun með snertingu. Með hljómsdiskinum er fylgirit með útskýringum á markmiðum og leiðbeiningum.
Meginmarkmið þessa verkefnis er að sýna fram á áhrifamátt tónlistar í starfi með börnum með sérþarfir, hvernig er hægt að nota tónlist til gagns og að útvega fagfólki, sem og öðru starfsfólki, gagnlegt efni með hljómdiski sem nýtist í kennslu, þjálfun, uppeldi eða umönnun, jafnt með einstaklingum sem og í hópi.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BA_Hallbjornloka.pdf | 237.69 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |