is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/964

Titill: 
  • Brúum bilið : námsörðugleikar
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Þessi ritgerð er lokaverkefni til B.Ed. gráðu við kennaradeild Háskólans á Akureyri.
    Meginmarkmið verksins var að öðlast
    vitneskju og betri þekkingar á
    námsörðugleikum. Margir nemendur glíma við örðugleika í námi á skólagöngu sinni.
    Í þessu verki er fjallað um námsörðugleika en þeir geta verið margvíslegir. Má þar
    nefna ofvirkni, athyglisbrest, einhverfu, hegðunarörðugleika og þroskahömlun.
    Bráðger börn og nemendur í áhættuhóp geta einnig fallið undir þá skilgreiningu að
    vera með námsörðugleika. Erfiðleikar þessir verða skoðaðir með tilliti til einkenna,
    orsaka og tíðni.
    Það er skylda grunnskóla að mennta nemendur sína á árangursríkan hátt og
    skapa nemendum námsaðstæður sem henta hverjum og einum. Til að svo megi vera
    verður kennarinn að þekkja nemendur sína vel, þarfir þeirra og eiginleika. Kennarinn
    þarf að vera vel undirbúinn fyrir kennslu og þekkja vel til þeirra örðugleika sem geta
    mætt honum. Því hefur hér einnig verið valið að fjalla um úrræði sem kennarar geta
    beitt við kennslu nemenda með námsörðugleika. Einstaklingsnámsskrá sem löguð er
    að námsþörfum einstakra nemenda og unnin er í samráði við foreldra er ein leið til að
    auðvelda bæði nemendum og kennurum nám og kennslu.
    Niðurstaða þessarar vinnu er sú að einkenni námsörðugleika eru margvísleg og
    misjöfn og ekki alltaf auðsjáanleg þ.e. oftar en ekki eru einkennin hulin sjónum okkar.
    Það þýðir að kennari þarf að vera mjög vel upplýstur um þessa örðugleika til að koma
    bæði augum á þá og mæta þörfum nemenda sem skyldi. Námsörðugleikar eru
    algengari en við gerðum okkur grein fyrir og verða kennarar að geta tekið við
    nemendum með námsörðugleika og mætt þörfum þeirra á réttan hátt.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri
Samþykkt: 
  • 1.1.2004
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/964


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
bruumbil.pdf306.91 kBTakmarkaðurBrúum bilið - heildPDF
bruumbil-e.pdf10.94 kBOpinnBrúum bilið - efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
bruumbil-h.pdf17.15 kBOpinnBrúum bilið - heimildaskráPDFSkoða/Opna
bruumbil-u.pdf13.12 kBOpinnBrúum bilið - útdrátturPDFSkoða/Opna