is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/965

Titill: 
  • Hvar sem lítið lautarblóm langar til að gróa : rannsóknarritgerð um lífsleikni
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í ljósi umræðna í samfélaginu um aga- og siðleysi í skólum á undanförnum árum hefur áhugi á lífsleikni farið vaxandi og kemur hún meðal annars fram í aðalnámskrám allra skólastiga sem menntamálaráðuneytið gaf út 1999.
    Í verkefninu er greint frá rannsókn sem unnin var í tengslum við þróunarverkefnið Lífsleikni í leikskóla sem er samstarfsverkefni þriggja leikskóla á Akureyri. Rannsóknin svarar spurningunni hvort munur er á samskiptum barna í leikskóla þar sem markvisst er unnið með lífsleikni og öðrum leikskólum. Til þess að leita svara við spurningunni er fjallað um hugtakið lífsleikni, og þroskaþætti sem það snertir. Það eru þeir þroskaþættir sem heimspekingar vilja kalla siðvit, það er siðferðisþroski, tilfinningaþroski og félagsþroski. Einnig er fjallað um samskipti og hvernig þau tengjast lífsleikni. Greint er frá rannsókn sem unnin var í ónefndum leikskóla þar sem tekið var viðtal við leikskólastjóra leikskólans, settur saman rýnihópur leikskólakennara og gerðar skráningar af börnum í leik og starfi. Niðurstöðurnar eru að lokum bornar saman við niðurstöður úr þróunarverkefninu Lífsleikni í leikskóla.
    Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru þær að greina má mun á samskiptum barna sem þátt hafa tekið í þróunarverkefninu Lífsleikni í leikskóla og annarra leikskólabarna. Munurinn liggur í aukinni samskiptafærni barnanna sem þátt hafa tekið í þróunarverkefninu Lífsleikni í leikskóla sem gefur til kynna að hægt sé að hafa áhrif á siðferðisþroska barna með markvissri lífsleiknivinnu.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er lokað
Samþykkt: 
  • 1.1.2004
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/965


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
lautarblom.pdf1.33 MBLokaðurHvar sem lítið lautarblóm langar til að gróa - heildPDF
lautarblom-e.pdf140.33 kBOpinnHvar sem lítið lautarblóm langar til að gróa - efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
lautarblom-h.pdf165.68 kBOpinnHvar sem lítið lautarblóm langar til að gróa - heimildaskráPDFSkoða/Opna
lautarblom-u.pdf103.84 kBOpinnHvar sem lítið lautarblóm langar til að gróa - útdrátturPDFSkoða/Opna