Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9671
Verkefnið er námsspil í eðlis-, líf- og jarðvísindum og er hugsað sem námsgagn í náttúrufræði. Markmið aðalnámskrár í náttúrufræði og umhverfismennt voru höfð til hliðsjónar við gerð spilsins, ásamt námsefni og öðrum heimildum. Spilið er einkum ætlað nemendum í 4. bekk og eru hugmyndir að spurningunum sóttar í lokamarkmið 4. bekkjar. Spilið er hannað með það í huga að það nýtist sem upprifjun á námsefni í 1.–4. bekk en auki jafnframt þekkingu nemenda. Um er að ræða borðspil sem byggt er upp með fjölbreytni að leiðarljósi. Spurningum í spilinu er skipt í fimm flokka, þeir eru almennar spurningar – gular, almennar spurningar – rauðar, leikspurningar, teiknispurningar og áhættuspurningar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
greinagerð -lokaverkefni.pdf | 613.72 kB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna | |
myndir lokaverkefni.pdf | 1.06 MB | Opinn | Fylgiskjöl | Skoða/Opna |
Athugsemd: Greinargerð og myndir af námsspilinu.