Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9701
Leikrænar kennsluaðferðir í lífsleikni á unglingastigi.
Útbúið hefur verið kennsluefni sem ætlað er að vinna gegn fordómum nemenda. Nemendur eru þjálfaðir í að setja sig í spor annarra og samkennd þeirra efld. Lögð er áhersla á sjálfstæð skapandi viðfangsefni sem efla sjálfstæði, skapandi hugsun og samvinnu. Kennsluefnið samanstendur af fjölbreyttum leikrænum æfingum sem kennarar geta ýmist notað sem sjálfstæð viðfangsefni eða sem hluta af stærra ferli. Í greinagerð sem fylgir kennsluefninu eru kynntar kenningar og hugmyndir fræðimanna á sviði leiklistar í skólastarfi, saga lífsleikni hérlendis skoðuð og hugtakið fordómar krufið og útskýrt. Greinagerðinni er ætlað að útskýra og rökstyðja tilgang kennsluefnisins.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Án fordóma - greinagerð.pdf | 287.18 kB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna | |
Án fordóma - kennsluefni.pdf | 6.32 MB | Opinn | Kennsluefni | Skoða/Opna |