is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9719

Titill: 
  • Réttindi feðra
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Réttindi feðra hafa lengi verið til umræðu í samfélaginu. Í þessu riti verður farið yfir helstu réttindi feðra. Til að byrja með verður fjallað um hvernig barn er feðrað en það fer þannig fram að barn er annað hvort feðrað sjálfkrafa eftir pater est reglunni eða þá að konan greinir frá hver sé faðir barnsins. Þegar konan hefur gert það þarf undirskrift karlmannsins svo að hann teljist faðir barnsins. Karlmaðurinn getur sjálfur beðið um að DNA-próf verði gert eða þá að farið sé í faðernismál. Í næsta kafla þar á eftir er fjallað um forsjá og hvernig leyst er úr ágreiningsmálm um forsjá. Algengast er að forsjá sé sameiginleg við skilnað eða sambúðarslit en þó kemur fyrir að aðilar geta ekki unnið saman og er þá samið um að annar aðilinn fái forsjánna eða farið er í forsjármál og dómari fenginn til að dæma þar um. Önnur leið sem fjallað verður um er Hafnarfjarðarleiðin er þar reynir dómarinn að koma á sátt með sáttarfundum og hefur sú leið gefist vel. Þegar foreldrar fara saman með forsjá er annað foreldrið svokallað lögheimilisforeldri en hjá því býr barnið. Það fylgja því ákveðin réttindi að vera lögheimilisforeldri en það foreldri hefur réttarstöðu einstæðs foreldris og fær barnabætur sem hitt foreldrið fær ekki. Oftast þegar farið er í forsjármál er kveðið á um umgengni en um inntak umgengni er ekki fjallað um í barnalögunum en þó kemur fram að foreldrar hafa rétt á því að umgangast barnið sitt. Ákveðin venja hefur myndast um inntak forsjár og fer dómarinn eftir því ásamt því sem hann tekur tillit til óska aðila og ráðgjafar sérfræðings. Í lögunum er einnig fjallað um hvernig bregðast skuli við umgengnishindrunum og réttindi fyrir forsjárlausa foreldrið til að fá upplýsingar um barnið frá ýmsum stofnunum.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er lokað
Samþykkt: 
  • 5.7.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/9719


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
meginmal.pdf520.4 kBLokaðurPDF
efnisyfirlit.pdf10.79 kBOpinnPDFSkoða/Opna
heimildarskrá.pdf107.8 kBOpinnPDFSkoða/Opna