Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9749
Ritgerð þessi fjallar um eigindlega rannsókn á félagsstarf aldraðra í Kópavogi og áhrifaþætti sem leiða til farsældar á efri árum. Markmið með rannsókninni var að fá innsýn í hvað þátttakendur fá út úr því að taka þátt í félagsstarfinu og í hverju starfið felst. Helstu niðurstöður leiddu í ljós að það er andlega, félagslega og líkamlega uppbyggjandi að taka þátt í félagsstarfinu. Þar fer fram heilsuefling og óformleg menntun í fjölbreyttu hópastarfi. Samvera með jafningjum gefur víðtæka reynslu sem hvetur meðal annars til frumkvæðis og virkni, byggir upp sjálfsmynd og samkennd ásamt því að efla þroska þátttakenda á ýmsan hátt. Með samvinnu ólíkra einstaklinga skapast samhljómur í starfinu. Félagsstarfið samræmist stefnu stjórnvalda um þjónustu við eldri borgara og styður þá til að vera virkir í samfélaginu. Heimildaöflun styður niðurstöður rannsóknarinnar.
Lykilorð: Öldrunarinnsæi, félagsstarf aldraðra í Kópavogi, lífsgæði aldraðra, hópastarf, félagsþroski.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BA rosbjorg.pdf | 180.98 kB | Lokaður | Heildartexti |