Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9756
Aukin krafa er um samfélagslega ábyrga stefnu fyrirtækja og skipt getur sköpum fyrir samkeppnishæfi þeirra að vera fær um að bregðast við slíku. Meðvitað starfsfólk hefur mikið að segja í þessu samhengi og því er eðlilegt að líta til þeirra áhrifa sem stefna í samfélagslegri ábyrgð getur haft á fyrirtækjamenningu. Einnig er litið til þess hvort stefna í samfélagslegri ábyrgð nái betur til starfsfólks ef hún hefur sterka birtingarmynd í táknkerfi fyrirtækja.
Í því skyni að rannsaka tengsl samfélagslegrar ábyrgðar og fyrirtækjamenningar er litið til fræðilegra kenninga sem og rannsókna. Einnig er gerð megindleg rannsókn á því hvort tengsl séu á milli upplifunar starfsfólks á birtingarmynd stefnu og þess hvort starfsfólk sé meðvitað um málefni sem snúa að samfélagslegri ábyrgð.
Niðurstöður leiddu í ljós að stefna í samfélagslegri ábyrgð hefur áhrif á fyrirtækjamenningu í gegnum sameiginleg gildi og viðmið starfsfólks. Slík stefna getur aukið hollustu en jafnframt valdið mótspyrnu. Loks hefur stefna í samfélagslegri ábyrgð áhrif á þau siðferðislegu álitamál sem snúa að markmiðasetningu fyrirtækja.
Einnig leiddu niðurstöður í ljós að tengsl gætu verið á milli birtingarmyndar stefnu í táknkerfi fyrirtækja og almennrar meðvitundar starfsfólks um málaflokkinn. Einnig benda niðurstöður til þess að nálgun hvað varðar samfélagslega ábyrgð þurfi ekki að hafa úrslitaáhrif á viðhorf starfsfólks. Rannsóknaraðferðum sem beitt var sýna ekki fram á orsakasamhengi en niðurstöður gefa þó tilefni til frekari rannsókna.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Þórhildur Ósk Halldórsdóttir - BS.pdf | 1.53 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |