Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9764
Ritgerðin fjallar um endurnýttan textíl og tísku í ljósi kenninga um smekk, menningarforræði og grasrótarmenningu. Hún byggir á eigindlegri viðtalsrannsókn en höfundur tók viðtöl við einstaklinga sem starfa og neyta á vettvangi endurnýtingar. Ritgerðin er jafnframt í samræðum við aðrar rannsóknir sem gerðar hafa verið á menningu endurnýtts textíls og tísku.
Ritgerðin skiptist í þrjá meginkafla, auk inngangs og niðurlags. Í innganginum er gerð grein fyrir rannsókninni og viðmælendum. Því næst er fjallað um hugtök, kenningar og rannsóknir sem ritgerðin byggir á og rætt um tildrög þess að endurnýttur textíll verður valkostur í tísku. Í köflunum sem á eftir koma er grafist fyrir um samfélagslegar ástæður þess að endurnýttur textíll hefur orðið hluti af tísku samtímans, um áhrif grasrótarmenningar á tískuforræðið og tískuneytendur sem leita á markaði endurnýtingar eftir hráefni til að skapa sinn sérstaka fatastíl. Helsta niðurstaða rannsóknarinnar er sú að endurnýtingarmarkaðurinn þjóni því hlutverki að marka einstaklingum og hópum sérstöðu innan tísku samtímans í tengslum við þær samfélagsbreytingar sem orðið hafa í kjölfar hnattvæðingar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Gunný Ísis Magnúsdóttir.pdf | 3.08 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |