is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Bifröst > Viðskiptadeild > Lokaverkefni í viðskiptadeild (BS) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9771

Titill: 
  • Er munur á verðvitund á matvöru milli Dana og Íslendinga?
  • Titill er á ensku Is there a difference in price awareness on food between Iceland and Denmark?
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Matvörumarkaðurinn í Danmörku og á Íslandi einkennis af fákeppni þar sem að þrír stærstu aðilarnir á báðum mörkuðum eru með um 80% markaðshludeild af markaðnum. Markaðssamþjöppun hefur aukist mikið undanfarin ár þar sem að margar litlar verslanir hafa horfið af markaðunum eða sameinast stærri fyrirtækjum.
    Verðvitund neytenda er mikilvæg til þess að viðhalda góðri og heilbrigðri samkeppni, því að með aukinni verðvitund neytenda þá eru þeir meðvitaðari um óeðlilega hátt vöruverð og eru meira vakandi fyrir verðbreytingum á vörum.
    Í þessari skýrslu var skoðað hvort að það væri munur á verðvitund Dana og Íslendinga. Sendur var út spurningalisti til bæði Dana og Íslendinga með tölvupósti og í gegnum samskiptaforritið Facebook. Niðurstöður úr könnuninni voru síðan bornar saman og fylgin á milli þeirra skoðuð til þess að svara þeim tilgátum sem að skýrsluhöfundur setti fram.
    Niðurstöður skýrsluhöfundar gefa til kynna að það sé munur á verðvitund Dana og Íslendinga og það sem helst hefur áhrif á hana er sú að danir eru líklegri til þess að bera saman verða á matvöru milli matvörubúða og eru tilbúnir að leggja meira á sig til að kaupa matvöru á hagstæðara verði.

Athugasemdir: 
  • Athugasemdir er á óskilgreindu tungumáli Ritgerðin er lokuð
Samþykkt: 
  • 28.7.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/9771


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BS Ritgerð_Viktoría Ólafsdóttir_220480-5699.pdf1.09 MBLokaðurHeildartextiPDF