is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn í Reykjavík > Samfélagssvið / School of Social Sciences > BSc Viðskiptadeild (og BSc sálfræði -2019) / Department of Business Administration >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9787

Titill: 
  • Atferlisfjármál: Hefur kyn og námsval áhrif á áhættuhneigð
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Meginmarkmið rannsóknarinnar er að fjalla um þær grundvallarkenningar atferlisfjármála sem snúa að áhættuhneigð og kanna hvort kyn, námsval og framsetning spurninga hefur áhrif á ákvörðunartöku nemenda þegar þeir standa frammi fyrir vali um áhættu. Spurningalisti var lagður fyrir nemendur í Háskólanum í Reykjavík með það að markmiði að kanna áhættuhneigð þeirra. Niðurstöður sýndu að karlar voru áhættusæknari en konur, og nemendur í fjármálatengdu námi voru áhættusæknari en aðrir nemendur, þegar gefið var í skyn að aukin áhættutaka fæli í sér hærri vænta ávöxtun. Innan hóps nemenda í fjármálatengdu námi voru karlar þó ekki áhættusæknari en konur.
    Þegar ekkert áhættuálag var í boði var ekki munur á áhættuhneigð kynjanna og ekki munur á áhættuhneigð nemenda í fjármálatengdum greinum annars vegar og annarra nemenda hins vegar. Ekki var munur á áhættuhneigð kynjanna meðal nemenda í fjármálatengdu námi. Framsetning spurninga hafði áhrif á val nemenda gagnvart áhættu, sem voru áhættufælnir þegar þeir stóðu frammi fyrir jákvæðri framsetningu valkosta en áhættusæknir þegar framsetning valkosta var neikvæð. Út frá niðurstöðum rannsóknarinnar má draga þá ályktun að ekki sé munur á áhættuhneigð kynjanna meðal nemenda í fjármálatengdum greinum.

Samþykkt: 
  • 2.8.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/9787


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Atferlisfjármál_Hefur kyn og námsval áhrif á áhættuhneigð.pdf389.87 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna