Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/980
Í þessari ritgerð verða tekin fyrir málefni sem tengjast gæðastjórnun í leikskólum.
Þær tvær meginspurningar sem leitast verður við að svara eru: Hentar gæðastjórnun
sem stjórnunaraðferð á leikskólum? Hvað er það sem næst fram með gæðastjórnun?
Gæðastjórnun byggir á því sem menn kalla stöðugar umbætur. Það er að umhverfið
sem við vinnum í er síbreytilegt og vegna þess verðum við í sífellu að vera að bæta
okkur. Ljóst er að vel heppnuð gæðastjórnun kemur til með að tryggja að tiltekin gæði
leikskólans haldist. Það má þó lengi rökræða um það hvort gæðastjórnun henti öllum
leikskólum. Gæðastjórnun getur stuðlað að því að starfsfólk leikskóla auki meðvitund
sína um gildismat og viðhorf sem liggur til grundvallar starfinu. Til þess að
gæðastjórnun teljist vera heppileg stjórnunaraðferð, verða allir starfsmenn að taka þátt
í breytingunum og þær að vera varanlegar. Mikilvægi þess að breytingarnar séu
varanlegar er að gæðastjórnun byggir á þvað sífellt er verið að þróa sig skrefinu
lengra. Ef breytingarnar verða ekki varanlegar er ávallt verið að byrja á sama punkti,
án þess þó endilega að farið sé í sömu átt. Talið er að þar sem gæðastjórnun er
viðhöfð á leikskólum, náist almennt betri árangur. Ástæður þess að betri árangur næst
á leikskólum þar sem gæðastjórnun er viðhöfð eru þær að samhljóða ákvarðanir
starfsfólks leiða til aukins trausts og trúverðugleika. Einnig ætti sú sífellda
endurmenntun sem gæðastjórnun byggir á að leiða til þess að hæfni starfsfólks
aukist. Til þess að þetta náist þurfa margir samverkandi þættir að vinna saman.
Yfirvöld, stjórnir sveitafélaga og leikskóla, leikskólakennarar, börn og foreldrar þurfa
að vera tilbúin til að setja sig inn í hugsunarhátt gæðastjórnunar og umbreyta til eigin
nota. Það skiptir miklu máli að allir taki virkan þátt í þeirri umbótavinnu sem
gæðastjórnun felur í sér.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
gaedastj.pdf | 625.07 kB | Lokaður | Gæðastjórnun í leikskólum - heild | ||
gaedastj-e.pdf | 306.82 kB | Opinn | Gæðastjórnun í leikskólum - efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
gaedastj-h.pdf | 322.6 kB | Opinn | Gæðastjórnun í leikskólum - heimildaskrá | Skoða/Opna | |
gaedastj-u.pdf | 280.41 kB | Opinn | Gæðastjórnun í leikskólum - útdráttur | Skoða/Opna |