Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9822
Þessi ritgerð fjallar um fasteigna og leigumarkaðinn frá ýmsum sjónarhornum. Þróun markaðar undanfarin ár er tekin til umfjöllunar og staða markaðarins í dag er metin, bæði með tilliti til tölulegra gagna og annarri heimildaöflun. Einnig er reynt að geta sér til hvað muni gerast á markaðnum á næstu árum.
Megintilgangur ritgerðarinnar er að meta hver sé arðsemi fasteignafjárfestinga á höfuðborgar-svæðinu árið 2011. Helstu niðurstöður þar að lútandi eru að raunarðsemin er á bilinu 1,19% – 6,93% að teknu tilliti til allra þeirra kostnaðar og tekjuþátta sem tengjast hverri eign. Hæsta arðsemin er af atvinnuhúsnæði í póstnúmeri 104 og lakasta arðsemin er af sex íbúða fjölbýlis-húsi í póstnúmeri 201.
Fasteignafjárfestingar með tilliti til áhættu eru að koma vel út í sögulegu ljósi í Bandaríkjunum. Á Íslandi hafa fasteignir náð að halda markaðsvirði sínu ágætlega miðað við aðra eignaflokka. Þetta sést vel þegar markaðsvirði eignaflokka er skoðuð fyrir og eftir efnahagskreppuna sem skall á í lok árs 2008 á Íslandi.
Raunvextir hæstu innlána hjá Landsbankanum eru 0,35% og raunvextir skuldabréfaflokksins HFF24 er 0,97%. Arðsemi fasteigna er góð í samanburði við þessa eignaflokka árið 2011.
Niðurstaða höfunda er sú að fjárfestingar í fasteignum ættu að vera hluti af vel dreifðu eignasafni og sé góður fjárfestingarkostur fyrir fjármagnseigendur á Íslandi árið 2011.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Hver-er-ardsemi-fasteignafjarfestinga-a-hofudborgarsvaedinu-arid-2011-FINAL.pdf | 2.98 MB | Lokaður til...01.01.2137 | Heildartexti | ||
Forsida_BSc-ritgerdar-FBB-GU.pdf | 115.95 kB | Lokaður til...01.01.2137 | Forsíða |